top of page

 

 

 

„Eru álfar kannski tröll? Og hvað geruum við í því?"
 

Eva Þengilsdóttir

​

auðnar - engum líkur

 

„Meira að segja dalurinn elskaði álfinn unga;

tjörnin gáraðist þegar hann valhoppaði um dalinn, 

áin breytti um farveg og það söng í fjöllunum.
Og hann hélt áfram að vaxa.“
(AUÐNAR - engum likur, 2026)

 

Auðnar - engum líkur kom út hjá Sögum útgáfu nú í haust. Hún fjallar um tröllastrák sem elst upp í álfheimum – flókið, en allt er hægt að leysa.

 

„Það er mikil þörf fyrir vandaðar barnabækur og þessi er svo sannarlega ein af þeim. Sem kennari mæli ég með þessari bók bæði í yndislestri og einnig til kennslu í Byrjendalæsi eða til samþættingar við aðrar námsgreinar s.s. myndmennt, textílmennt, hönnun og smíði eða lífsleikni. Það er mjög gott og fallegt flæði í frásögninni og það eru einhverjir töfrar í textanum. Þá er söguþráðurinn ljúfur og á sama tíma spennandi og tregafullur. Textinn er fjölbreyttur og býður upp á óþrjótandi möguleika til vinnu og úrvinnslu.

 

Tekið er á mikilvægum hlutum eins og fordómum og ofbeldi. Boðskapurinn í mínum huga er dæmum ekki fyrirfram, komum vel fram við öll og stöndum upp fyrir þeim sem verða fyrir ofbeldi. Og síðast en ekki síst sjáum allt það fallega sem er allt í kringum okkur alla daga.“

Sigríðar E. Konráðsdóttir kennari

 

​​​

Höfundur: Eva Þengilsdóttir​

Auðnar - engum líkur kom út haustið 2026 hjá Sögum útgáfu.

​

​

Audnar_kapa.jpeg

© Eva Þengilsdóttir 2014. Allur réttur áskilinn ı All rights reserved.

bottom of page