top of page

hvati hvolpur

fyrir Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

 

„Hvati er fundvís á skemmtilega leiki og æfingar og þó að gangi misvel veit hann að það borgar sig að gefast ekki upp – heldur gera sitt besta. Hann kann alls konar hundakúnstir – hann veltir sér, teygir sig, beygir og hneigir.“

 

Árið 2006 bjóð Eva til karakterinn Hvata hvolp fyrir Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Hvati er teiknaður af Kára Gunnarssyni.

 

 
tuskudýr ı handbrúða
 

Hvati hvolpur hefur verið framleiddur sem handbrúða (tuskudýr) og er fáanlegur með vaxtarstiku. Stikan er með kvæðum og æfingum. Efnið er unnið af Evu og sjúkraþjálfurunum Áslaugu Guðmundsdóttur og Þorbjörgu Guðlaugsdóttur.

 
bók
 

Eva skrifaði bókina Gerðu eins og ég – Hvati og dýrin sem kom út hjá Máli og menningu fyrir jólin 2012. Bókin er myndskreytt af Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur
Meira um bókina ...

 

sjónvarp
 

RÚV gerði nokkra stutta þætti upp úr bókinni um Hvata og voru þeir sýndir í Stundinni okkar vorið 2013.

 

vinnublöð
 

Skemmtilegar þrautir og verkefni hafa verið birt í Barnablaði Morgunblaðsins og má finna á vefsíðu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. 

 

 

 

 

 

 

Activity worksheet
bottom of page